Á laugardaginn kemur, kl 12.00 verður flautað til leiks í fyrsta
leik BÍ þetta sumar og verða mótherjarnir að þessu sinni leikmenn
GG frá Grindavík. Þessi lið hafa aldrei áður mæst í
íslandsmóti en hið forna knattspyrnulið Ernir frá ísafirði hefur
mætt GG tvívegis. Margir aðdáendur BÍ hafa spurt undirritaðan
hvaða leikmenn við höfum misst og hverja við höfum fengið frá
síðasta tímabili og til þess að svara því kemur hérna lítil
upptalning á því.
Komnir:
Jón Helgi Guðnason frá Núma
Þröstur Pétursson frá FH
Halldór Hlöðversson frá Hetti (tímabundið)
Farnir:
Atli Þór Jakobsson í Breiðablik
Benedikt Birkir Hauksson í Keflavík
Benedikt Emilsson í Hrunamenn
Halldór Ingi Skarphéðinsson í Bolungarvík
Haukur Benediktsson í Bolungarvík
Hálfdán Daðason í Fjölni
Kristján Fannar Ragnarsson í Magna Grenivík
Óskar Örn Hálfdánarsson Hættur
Pétur Georg Markan í Fjölni
Pétur Már Sigurðsson í Skallagrím
Rúnar Geir Guðmundsson í Bolungarvík
Sigþór Snorrason í Keflavík
Tómas Emil Guðmundsson í Fjölni
Þórður Jensson í HK
Alexander Ilic hættur
Srdan Scoric hættur
Þetta gera samtals 3 leikmenn komnir og 16 leikmenn hættir eða
farnir í önnur lið. Eins og flestir gera sér í hugarlund er
þetta mikil blóðtaka fyrir lítinn klúbb en þeir sem eftir standa
eru ákveðnir í að láta sitt ekki eftir liggja og bera merki félags
sína hátt á lofti í sumar. Mikið af ungum strákum munu spila
í liðinu í sumar og verður forvitnilegt að sjá árangurinn.
Þess má geta að eingöngu 5 leikmenn úr leikmannahópi BÍ núna
spiluðu leiki fyrir BÍ síðasta sumar en það eru Ellert Örn
Ellertsson, Ásgeir Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Sigurgeir
Gíslason og Ívar Pétursson.
Við vonum að fólk fjölmenni að gervigrasvellinum á Torfnesi á
laugardaginn kl 12 og styðji okkur til sigurs gegn GG. Þetta
verður hörku leikur þar sem bæði liðin ætla sér sigur.
Með BÍ kveðju, Guðmundur